Bráðum kemur ný Hulk mynd. Mynd sem er semi-rebútt af seríunni. Byrjar upp á nýtt, með nýjum leikurum og fíling, en án þess að stroka myndina hans Ang Lee út. Nýja myndin hunsar hana bara — sleppir því að vísa í fyrra plott. Meira eins og Batman Forever en Batman Begins. Það hefur minna farið fyrir því að Punisher fær sömu meðferð í Desember.
En það er komin [ stikla ].
Nú er fyrsta myndin hroðalega léleg. Og ég býst fastlega við því að þessi B-myndalegi síkvúal verði enn verri (þó veit maður aldrei), en það verður (verður! segi ég!) að segjast að [ Ray Stevensson ] lúkkar og hljómar alveg nákvæmlega eins og myndin sem ég hef af Frank Castle í hausnum. Það er eins og Steve Dillon eða Klaus Janson hafi teiknað hann.
Það vekur áhuga minn á myndinni. Áhuga sem var ekki til staðar áður.
FIN