Ég ákvað barað geretta offisjal. Bloggfrí í bili. Hefði átt að tilkynna það fyrir langalöngu. Ekkert forever, sko. Barí bili.
FIN
Ég ákvað barað geretta offisjal. Bloggfrí í bili. Hefði átt að tilkynna það fyrir langalöngu. Ekkert forever, sko. Barí bili.
FIN
Eftir mikið þjark, þá hef ég endurkóðað Bastarðstempleitið frá grunni. Eða, tjaa, grunnurinn er [ sandbox ] þemað. Ég hreinlega nennti ekki að kóða mitt eigið templeit niðrí rætur eins og ég gerði áður.
Lengst af, þá eyddi ég tíma í að breyta útlitinu, en komst á endanum að þeirri niðurstöðu að mestmegnis væri lúkkið fínt eins og það væri. Bara mestmegnis, þó. Það eru dulitlar breytingar, eins og lesendur ættu að geta séð — nýju kommentboxin, augljóslega (knúin af [ awp ]), hverskyns smáfix og horaðri hliðarrein.
(Ég er reyndar ekki 100% ánægður með litapalettuna og fúnksjónina í kommentboxunum, þannig það má búast við áframhaldandi fikti þar næstu daga.)
Það mun líka eitthvað bætast við. Ýtarlegra færslusafn og leitarfítus. Ég fæ leitina bara ekki til að hegða sér akkúrat eins og ég vil. Hún kemur upp eftir tilvonandi „eureka!“ móment.
Látið mig vita ef þið sjáið einhverja feila, enskuslettur eða skakkan kóða.
Mér var bent á það að það hefur ekki verið hægt að kommenta hérna síðan ég flutti síðuna um þjóna. Ég hafði reyndar tekið eftir því að fólk var óvenju þögult, en ég pældi ekki mikið í því. Hefði kannski pælt meira ef það væri ekki nóg annað fyrir mig að pondera akkúrat núna.
En, s.s., búnað laga.
Þannig, þúst, kommentið.
FIN
Ég er fluttur. Bastarðurinn, Spekingarnir og Tregawöttin öll komin á íslenskan vefþjón. Free of charge, meiraðsegja. Fariði og flettiði í gegnum [ 'wöttin ]. Þau voru svosvo hæg en eru núna svosvo hröð.
Æðisæðiæðibuna!
Einhverjir hnökrar hér og þar, en ekkert hroðalegt. Endilega hóið í mig ef þið rekist á eitthvað.
FIN