Ég var að renna í gegnum bókaskápinn minn í leit að einhverju lesefni þegar ég rak augun í eina af mínum uppáhaldsbókum, Myllan á Barði; eða undarlegir atburðir sem urðu hér um árið í Otravatnshéraði. Ég les bækur yfirleitt ekki nema einu sinni, einstaka sinnum tvisvar, en þessa bók las ég árlega í nokkur ár. Ég fattaði allt í einu að ég vissi ekkert um þessa bók, hvaðan hún kæmi eða annað1. Hún er eftir litháíska höfundinn2 Kazys Boruta og kom út hjá Máli og Menningu 1976 í þýðingu Jörundar Hilmarssonar.
Bókin fjallar um hlédrægan miðaldra myllara sem verður ástfanginn af helstu daðurdrós sveitarinnar og semur við púka (sem er óttalegur lúser og telur að díllinn geti hjálpað sér með statusinn í stéttarfélaginu) um ástina: Hilarity ensues.
Ég finn ekki sérlega mikið á skiljanlegu tungumáli um þessa bók eða höfundinn, t.d. er greinin um hann á wikipedíu bara stubbur. Eg sé þó að hann skrifaði nokkrar fleiri bækur, en sé ekki að nokkur þeirra hafi verið þýdd á ensku.
Kannast einhver annar við þessa bók eða höfundinn? Veit einhver hvort fleiri bækur eftir hann hafi t.d. verið þýddar?
FIN