Sniðugheit

Af hommum og hamingju og pólitískri velgengni

Ég hef verið óvenju spenntur fyrir myndinni hans Gus Van Sants um frumhommann Harvey Milk. Stikluna má skoða [ hér ]. Ég spennist sjaldan fyrir ævisögum, hvað þá með Sean Penn í aðalhlutverki. Sean Penn fer svo oft í pirrurnar á mér, þó reyndar aðallega sem hann sjálfur, frekar en sem leikari.

Myndin er víst aðallega reist uppúr heimildarmynd frá 1984 sem heitir Times of Harvey Milk. Heimildarmynd sem ég er ekki búnað sjá, en er að halast inná áglápsvélina mína.

En myndina er líka hægt að sjá í [ jútjúb-gæðum ].

FIN

Ogsvo krota svo

Ég er ekki viss hvort ég hafi nokkurntíman minnst á flickr síðuna mína hér.

http://www.flickr.com/photos/bastardur/

Ég var að henda inn stóru öppdeiti. Fyrsta í soldinn tíma.

FIN

Siðareglur bíóferða

[ Handa þér, Einar ]

FIN

Bara svo þið munið, ég óf byltinguna

Nýtt og glansandi [ Nei. ] opnaði núna á miðnætti.

Allir að bylta.

FIN