Sverrir: Fokk hvað ég hata Davíð Oddsson.
Sjálfstæðisflokkurinn: HEY! EKKI DISSA MÖMMU MÍNA!
Sverrir: Vatt? Ég var í þessum flokki þegar hann var í bleyju. Barðist fyrir fokking zetunni, óldskúl íhald inn að beini.
Sjálfstæðisflokkurinn: LALALALA EKKI AÐ HLUSTA!
Sverrir: Iss. Stofna bara eigin flokk. Kalla hann fokk-Davíð-flokkinn.
Einhver: Hvað um að kalla hann Frjálslynda flokkinn?
Sverrir: Já, eða það.
* Seinna *
Guðjón: Fokk hvað ég þoli ekki kvótann.
Sverrir: Davíð Oddsson elskar kvótann. Ekki ég. Vertu memm.
Guðjón: Jámar!
Sverrir: Þetter dóttir mín.
Margrét: Hæ.
* Seinna *
Sverrir: Hurðu, ég er orðinn alltof gamall fyrir þetta. Magga tekur við.
Guðjón: Ha?
Margrét: Jöss!
* Seinna *
Magnús: Fokk hvað ég hata útlendinga.
Guðjón: Hey, vert þú líka memm.
Margrét: Ertaðfokkímér?
Guðjón: Fokka þú þér.
Margrét: Jæja, sjáum til hvað flokkssystkinin segja um það!
Frjálslyndi flokkurinn: FOKKAÐU ÞÉR!
Margrét: Ó.
* Seinna *
Frjálslyndi flokkurinn: Ég er ekki rasisti! Ég er ekki rasisti! Fokking útlendingar!
Allir aðrir: VÍST ERIÐI RASISTAR!
Frjálslyndi flokkurinn: Jáókei, en það var óvart.
FIN